GRETTISTAK SES

Grettir sterki Ásmundsson

  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Grettishátíð 2012

Grettishátíðin verður haldin helgina 27-29. júlí í sumar. Hefðbundin dagskrá verður að vanda með leiðsögn að Bjargi, skemmtunum í Grettisbóli á Laugarbakka. Víkingar verða á svæðinu sem sýna og selja handverk, farið verður í víkingaleiki, keppt í bogfimi og Miðfjarðarleikar í kubb haldnir. Margvísleg dagskrá verður fyrir börn. Árleg aflraunakeppni verður að vanda á sunnudeginum.
Nánari upplýsingar um dagskrána eru væntanlegar og verða settar á vefinn www.grettistak.is og auglýstar þegar nær dregur.

 

Grettismyndir Halldórs Péturssonar

Útgáfa á bók með með myndum Halldórs Péturssonar úr Grettis sögu.

Grettistak hefur gefið út í samvinnu við bókaútgáfuna Ormstungu, bók með teikningum Halldórs Péturssonar af helstu atburðum Grettis sögu. Í bókinn eru 16 einstakar pennateikningar eftir Halldór með tilvísun í söguna. Myndirnar sýna atburði úr lífi Grettis og koma nú fyrst fyrir sjónir almennings á bók.

Í ítarlegum inngangi veltir Örnólfur Thorsson fyrir sér byggingu sögunnar og stöðu hennar meðal Íslendinga sagna. Þessi greinargóði og upplýsandi formáli ásamt hinum glæsilegu myndum gera bókina einkar áhugaverða fyrir þá sem ekki þekkja efnið fyrirfram en vilja kynnast spennandi heimi íslenskra fornbókmennta.

Texti bókarinnar er á 3 tungumálum: íslensku, ensku og þýsku.

Halldór Pétursson var fjölhæfur og mikilvirkur listamaður með gott formskyn og kímnigáfu. Hann vann jöfnum höndum að grafískri hönnun, teikningum, olíumálverkum og vatnslitamyndum. Og var mjög þekktur teiknari og kom fram í sjónvarpi og teiknaði mikið af skopmyndum í dagblöð og tímarit.

Teikningar Halldórs við söguna um Gretti sterka eru með síðustu teikningum sem hann vann

Bókin er til sölu í Spes markaði á Laugarbakka og víðar á svæðinu sem og í öllum helstu bókabúðum landsins. Bókina má einnig panta með því að senda tölvupóst á This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it  

Útgáfan er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

 

Víkingabúðir

Á Grettishátíð sem verður haldin 7-8 ágúst verða settar upp víkingabúðir fyrir börn þar sem þau geta upplifað störf og leiki víkinga. Búðirnar eru miðuð við börn að 12 ára aldri sem geta tekið þátt í þeim í styttri eða lengri tíma yfir daginn. Þau velja sér verkefni eftir áhugasviði og lögð er áhersla á að þau fái að prófa og taka þátt í fjölbreyttum leikjum og störfum. Ekki þarf að skrá börnin í búðirnar, sem eru ókeypis. 

M.a. þess sem unnið verður með í búðunu er:

  • Klæðnaður víkingar: Börnin læra um víkingaföt og fá að klæðast víkingabúningum.
  • Matur víkinga: Hvað borðuðu víkingar. Hráefni skorið niður, súpa elduð og brauð bakað yfir eldi.
  • Skart: Börnin læra að búa til einfalda skartgripi, hálsmen, hringa, nælur og annað víkingaskart.
  • Vopn: Einföld vopn smíðuð og kennt að skylmast og nota exi og skjöld.
  • Bogfimi: Kennt að skjóta af boga í mark. 
  • Víkingaleikir: Farið í fjölbreytta leiki, svo sem kubbspil, hnefatafl, knattleik og aðra víkingaleiki.
  • Rúnir og tákn: Sagt frá rúnum og táknum víkinga og notað til að skreyta skart og skildi.
  • Leður: Saumaðir einfaldir hlutir úr leðri.
  • Sögur af víkingum: Lesnar sögur af helstu köppunum og sett upp leikrit.
  • Víkingamyndir: Yngstu börnin munu m.a. lita myndir, skreyta skart og skrifa rúnir.

Grettishátíðin er styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra.

 

 

Grettisbikarinn - aflraunir

Að vanda verður aflraunakeppni Grettishátíðarinnar á sunnudeginum. Eins og í fyrra verður aflraunakeppnin í Grettisbóli á Laugarbakka. Keppt er bæði í karla og kvennaflokki og fá konurnar léttari steina og aflraunir en karlarnir til að glíma við.

Aflraunakeppnin er hugsuð fyrir heimafólk og vönu aflraunafólki er ekki heimil þátttaka. En að keppni lokinni er krýndur sterkasti karlinn og konan í Húnaþingi vestri. Allir aðrir en aflraunafólk geta tekið þátt, en til að fá Grettisbikarinn þarf viðkomandi að hafa lögheimili í Húnaþingi vestra.

Góð verðlaun eru fyrir 3 efstu sætin í keppninni, sem allir eiga möguleika á að næla sér í.

Keppnisgreinar eru eftirfarandi:

  • Hleðslugrein, Fjórir hlutir eru bornir og þeim kastað yfir rá sem er í um 150 cm hæð, tíminn mældur.
  • Bændaganga, Sandpoki er borinn í sitthvorri hendi.
  • Bíldráttur, bíll er dreginn vissa vegalengd og besti tíminn vinnur
  • Axarlyfta, öxi er haldið í axlarhæð með framréttar hendur í sem lengstan tíma.
  • Steinatök,  fjórum aflraunasteinum er lyft upp á undirstöður. Léttari steinar fyrir konur. Mælt á tíma.

Aflraunasteinarnir eru í Grettisbóli og öllum frjálst að kíkja á þá og taka æfingu fyrir keppnina. Konur fá léttari þrautir en karlarnir. Tekið er við skráningum á netfangið This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

 

Að loknu eldsmíðanámskeið

Mjög áhugaverðu eldsmíðanámskeiði lauk um helgina í Grettisbóli á Laugarbakk. Jan Jonsson, eldsmiður frá Svíþjóð var leiðbeinandi á námskeiðinu og kenndi grunnatriði varðandi eldsmíðina. Nemendurnir voru mjög áhugasamir og urðu til hinir ýmsu smíðagripir á námskeiðinu. Lögð var áhersla á að endurvinna og nýta gamalt járn eins og skeifur og tinda úr heyvinnuvélum. Smiðjur voru fengnar að láni, ma. frá Guðmundi Hringhornafélaga á Akranesi og þökkum við kærlega fyrir lánið. Þá kom Daníel Kristjánsson frá Þingeyri, en hann er einn fremsti eldsmiður á landinu og var hann að aðstoða og kennna á námskeiðinu. Jan gaf síðan Grettistak nokkuð af eldsmíðatækjum og er honum veittar miklar þakkir fyrir þá rausnarlegu gjöf. Núna er verið að vinna í því að félagið eignist smiðju sem áhugasamir geta fengið að nýta til að eldsmíða í Grettisbóli.

Námskeiðið var styrkt af Menningarráði Norðurlands vestra

 

 
  • «
  •  Start 
  •  Prev 
  •  1 
  •  2 
  •  3 
  •  4 
  •  5 
  •  6 
  •  Next 
  •  End 
  • »


Page 1 of 6